Síðustu dagar hafa verið dásamlegir. 22.
des var haldið á Selfoss með pakka handa fjölskyldunni.
Nýtti ferðina og fór í smá búðarráp og kom m.a. við í
Mjólkurbúðinni, sem er snilldar búð skal ég segja ykkur.
Þessi búð er staðsett við hliðina á mjólkurbúinu og er búin að
vera þarna síðan í fyrndinni næstum því. En aðal snilldin
við þessa búð er sú að þar búa afgreiðsludömurnar til sína eigin
osta og sóður sem þú færð hvergi annarsstaðar. Ég mæli með
mjólkurbúðinni ef ykkur langar til þess að kaupa eitthvað nýtt
og skemmtilegt. Þennan dag var einnig etin pizza að
heimili stófrænku minnar henni láru minni.
23. des þá var þrifið fyrrpart dags og darri
skreitti jólatréð, hann kemur með nýja strauma í
jólatrésskreytingum drengurinn
Þurfti að redda
aðaljólagjöfinni á síðustu stundu, en það reddaðist sem betur fer,
hefði ekki fyrirgefið mér ef það hefði ekki reddast. Síðan
var étið steikt slátur í kvöldmatnum, hræðilega sveitó, ég
veit...
Um kvöldið fórum við tinna svo í kringluna að finna
jólakjól handa henni, það er nú ekki á hverju ári sem maður er
kasóléttur á jólunum. Hún fann sér æðislega sætan kjól og var
svo mikil dúlla í honum að ég bara dó! myndir
væntanlegar.
Aðfangadagur byrjaði rólega, þurfti reyndar að rífa
mig fram úr og út í smáralind þar sem ég átti eftir að kaupa eina
jólagjöf og svo vantaði meiri mjólk þar sem ólétta konan drekkur í
kring um 2 lítra af mjólk á dag! Þetta gekk vel og var ég
komin aftur heim eftir 45 mínútur. Fór síðan í heimsókn með
jólagjöfina sem keypt var um morguninn seinna um daginn og tók
daddsus með, hann var orðinn frekar spenntur yfir jólunum þessi
elska. Fórum svo heim og beint í jólafötin og snæddum
jólamatinn og svo var drifið sig í pakkaflóðið. Ég fékk fullt
af glingri þar má helst nefna nærbuxur frá láru, ekta
bómulla-ömmu-nærbuxur sem ná upp undir brjóst og svo bók sem ég
hlakka mjög til að lesa, titill verður látinn liggja á milli
hluta.
En hápunktur jólanna var jólagjöf mín til Tinnu, ég
gaf henni bókina "íslenski hesturinn" og var hún svo hrærð við
þetta að hún táraðist, já betra er að gefa en þiggja.
Darri minn fékk margt og mikið, sjónvarp,
playstation 2 tölvu má þar helst nefna. Hann er svo
yndislegur drengurinn að þegar ég spuði hann hver uppáhaldsgjöfin
væri þá svaraði hann "bara allar uppáhalds" svo sætt og
þakklátt eitthvað.
Jóladagur var snilld, lá í leti allan daginn í nýju
nærbuxunum mínum, át og spilaði tölvuleik. Ég er ótrúlega
glöð yfir því að það sé ekki til siðs í minni fjölskylduað halda
jólaboð á jóladag. Annan í jólum var farið á selfoss til ömmu
og afa og fjólu frænku. Síðan komið við hjá þeim mætu feðgum
Labba og Bassa áður en haldið var til Rvk.
Já þessi jól voru góð, eytt í faðmi fjölskyldunnar
og sonur minn hefði ekki getað verið yndislegri um jólin.
GLEÐILEG JÓL ALLES!!